Þegar ég vaknaði í morgun, þá leit þetta út eins og hver annar
fallegur sumardagur á Íslandi, nema hvað að það voru tveir pólskir
iðnaðarmenn fyrir utan gluggann minn þegar ég vaknaði. Átti ekki
von á því, en þetta var skemmtilegt surprise. Ég settist við
skrifborðið mitt og byrjaði að glugga í skólabækurnar enda
mikilvægt próf á morgun. Þegar ég saup fyrsta sopann úr könnunni
minni datt mér engan vegin í hug að fyrir miðnætti ætti eftir að
birtast mynd af mér í einum vinsælasta fjölmiðli landsins.

Eins og sjá má stend ég þarna í nýju hvítu hettupeysunni minni,
undir ljósastaursboganum rétt vinstra megin við gáminn. Ykkur til
glöggvunar, þá vil ég benda ykkur á að þarna er um vef að ræða sem
er öllu vinsælli en pose.is - fm957.is og superman.is ...
SAMANLAGT.
Það er því ljóst að þetta BeerBears blogg hefur hjálpað mér við
að komast á síður vinsælustu fréttamiðla landsins. Ég hef því
ákveðið að láta hér staðar numið og hætta að skrifa hérna. Enda er
blogg sooo 2006. Ég þakka öllum lesendum sem hafa hjálpað mér að
þessu markmiði mínu.
Fyrir þá sem vilja sjá nýju hvítu hettupeysuna mín upclose og
personal geta séð hana hér á þessari mynd sem var tekin af okkur
Hannesi í afmælinu hennar Signýar um daginn. Hún átti afmæli og
ákvað að bjóða um 1000 manns í heljarinnar veislu á NASA. Þeir sem
þekkja okkur (sem eru væntanlega báðir þeir sem kíkja hingað inn) -
vita væntanlega að þetta er ekki besta myndin sem hefur verið tekin
af okkur Hannesi! Færri vita að þetta er alls ekki
viskustykki sem Hannes er með um hálsinn. Þetta er bara
tíska...Habbzteinzi sagði mér það!

Bestu kveðjur,
Oggmonster General