Photos
Countdown
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1102 dögum
28.09.2008 20:30:59 / Nonnmeister General

.

mic check mic check ... nei djók...

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.08.2008 19:59:24 / Nonnmeister General

Beerbears á leið í dvala aftur...

Nú fer að koma vetur og þá leggjast birnir aftur í dvala.

Þið eruð eiginlega öll búin að vera pínulítið ömurleg, nema Þóra auðvitað og Sigrún einu sinni ... en við hverju getur maður búist??  Að einhver af þessum 54 sem hafa heimsótt síðuna í dag kommenti ... ó nei ... maður getur sko aldeilis ekki búist við því.

Núna er semsagt komið að leiðarlokum hjá okkur í Danmörku í sumar.  Sumarið er búið að vera frábært í alla staði og maður sér svo aldeilis ekki eftir því.  Bæði hef ég kynnst nýju fólki eins og Bryndísi og Himma - og þess heldur endurnýjað kynnin við Sigrúnu Halldóru - sem er dóttir vinar hans pabba.  Við vorum oft saman í útilegum og svona shit þegar við vorum yngri, en ég hef ekki hitt hana í svona 5 ár fyrr en núna í sumar.

Stjáni & Halli fóru heim í gærkvöldi og er að vanda mikill söknuður af þeim kónum að vanda.  Bryndla fór um helgina að þykjast skrifa ritgerð og Sigrún og Himmi fara annað kvöld.   Sjálfur heiti ég Jón og fer til Prag í hádeginu á morgun. Ætlunin er, like stated above, að koma mér til Búkarest á 12 dögum.  Fyrst að það er hægt að fara í kringum jörðina á 80 dögum, þá geri ég ráð fyrir því að ég meiki það.  Spurningin er bara sú hvort ég muni vakna með 2 nýru eða 1 nýra og ísmolapoka ... það verður bara að koma í ljós.

Ég mun kannski koma til með að láta í mér heyra, en eina skilyrðið er að ég fái 5 komment við þessa færslu - og þau verða að vera frá 5 mismunandi aðilum.  Annars er ég ansi hræddur um að Beerbears leggist í dvala og verði svo skotnir af veiðimönnum í ætisleit í vor og komi aldrei aftur.

Bið ykkur vel að lifa...

» 4 hafa sagt sína skoðun

28.07.2008 13:21:09 / Nonnmeister General

Hitt og þetta

Mig langar að byrja á því að þakka öllum þeim sem sendu mér afmæliskveðju um helgina kærlega fyrir þær.  Alltaf gaman að eiga afmæli.  Bestu þakkirnar fá samt Sigrún og Bryndís fyrir að baka fyrir mig köku....  það var ossom.

Annars er það morgunljóst að ég er að verða eldgamall.
a)  Halli byrjaði að segja að ég væri hálf fimmtugur.  Svo mótmælti ég því og sagðist vera hálf þrítugur, sem er rétt.  Hann hélt áfram að röfla og tauta hvað ég væri gamall og vil ég þakka Arnþóri og Bryndísi fyrir dygga aðstoð í baráttunni gegn unglingnum.

b)  Litla systir mín hringdi í mig og óskaði mér til hamingju með afmælisdaginn og tilkynnti mér um leið að hún hefði náð bílprófinu.  Litla systir mín....sem var einu sinni pínulítil er nú að fá bílpróf.  Annars gleðst ég bara, nógu dýrir eru nú taxarnir heima um helgar.

c)  Til að toppa allt saman þá tók minn elsti vinur, Stefnir og eiginkona hans Sigrún, upp á því að gifta sig daginn fyrir afmælið mitt.  Fallega gert hjá honum samt að senda mér SMS og láta mig vita.  Persónulega hefði ég beðið fram að afmælisdeginum mínum, but different people different needs.  Takk samt fyrir að stelpa ekki þrumunni minni og again til hammó.

Annars fer skólinn alveg að klárast hérna.  Eitt próf þann 6. ágúst og eitt próf þann 7. ágúst.  Síðan er ég búinn að vera að spá hvað ég ætla að gera þegar þetta klárast.  Þar sem ég nenni ekki heim, þá ákvað ég að fara til Austur Evrópu.  Ákvað því næst að halda smá útsláttarkeppni.  Setti 8 borgir í pott og dró svo 2 saman þar til ég var kominn með 4x2 liða grúbbur.  Sá miði sem ég dró fyrr upp úr hvorri grúbbu vann.  Eftir æsispennandi 8 liða úrslit, þá mættu annars Búkarest og Kiev, og hins vegar mættust Belgrad og Prag.  

Í úrslitaleiknum bar Búkarest sigur af Belgrad og því hef ég keypt flugmiða frá Búkarest til Íslands þann 21. ágúst nk. 
Í leik um 3-4 sætið sigraði Prag leikinn gegn Kiev, og því mun ég byrja í Prag. Nánar tiltekið þann 8. ágúst.

ANYWAY .... 20 heimsóknir á einum degi.  Nokkuð gott m.v. ekkert blogg í mánuð.  Kommentið nú ... kom nu!


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.06.2008 14:18:47 / Nonnmeister General

...

a)  Tequila á tíkall danskar er næst versta hugmyndi í heimi.
b)  10 skot af Tequila á 100 kall er eina hugmyndin sem er verri.
c)  Hitti Símon í gær ... vinur hans Hannesar úr Hr. Ísland.  Tókum nokkra drykki saman ásamt fleiri Íslendingum.  Enduðum kvöldið með að láta kúka á hann.  Sátum á Rådhuspladsen þegar að einhver fugl setti smá klessu á hnakkann hans.  Honum fannst það ekki vitund fyndið.  Ég hef ekki skemmt mér jafn vel síðan að það var kúkað á Atla fyrir utan Árbæjarskóla í 8 bekk.
d)  Fórum á kynningarfund í skólanum í gær.  Þar lærðum við ákaflega mikið af skemmtilegum og gagnlegum hlutum eins og að: stoppa á rauðu ljósi.  
e)  Sé eftir því að hafa ekki tekið hjólið með.  Við Himmi vorum á undan feidabollunum Halla, Stjána, Sigrúnu og Bryndísi í bæinn í gær.  Hjól vs. leigubíll (100 DKK).
f)  Heyrumst

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.06.2008 18:15:20 / Nonnmeister General

Í tilefni sumarsins

Ég stend við það að blogg er ótrúlega 2006 - en í ljósi þess að ég ætla að eyða sumrinu með Stjána og Halla í CBS og vegna fjölda áskoranna þá hef ég ákveðið að endurlífga BeerBears fram í haust.  Ágætt að byrja á léttri yfirferð á því hvað við erum að gera þessa dagana:

Sjálfur:  Piparsveinn í Kaupmannahöfn næstu 6 vikurnar.  Kaupi ekkert nema bjór og mat sem þarf ekki að vaska upp eftir - allavega þangað til að Erna kemur til að vaska upp.  Ekki ónýtt að geta keypt 30 flöskur á 90 DKK + pant.  

Hannes:  Rúntar um með Huldu á daginn.  En hann er allavega í vinnubuxunum þannig að það lítur út fyrir að hann sé að vinna.

Stefnir:  Hann er í útlánadeildinni hjá Lýsingu en tekur yfirvinnu í BabyFactory þessi misserin.  Fínt að fá það bara frá fyrst að menn eru á annað borð byrjaðir.  Vantar þig barn en átt ekki mann.  661-7535 og við kippum málunum í liðinn.

Brynjar:  Útlánasvið hjá Fjármálaeftirlitinu.  Gott að hafa einhvern til að halda eftirliti yfir Stefni - það klikkaði eina kvöldstund þarsíðasta haust og við vitum öll hvað gerðist.  Einhleypur? nei. Barnlaus? já.  Allt í lagi að vera í sambandi ef maður kann sig í rúminu.  Eða því sem næst...allir vita að Brynjar kann sig ekki í rúminu.  Iðunn er þó allavega flutt í bæinn svo að BH þarf ekki lengur að fljúga í klukkutíma, keyra í annan og borga 25.000 kall til að fá líkamsræktina sína.  

Alli:  Full time á Brons og svo passar hann Andra vin minn þess á milli.  Svo fer hann stundum í ungbarnasund kl. 9 á laugardagsmorgnum.  Ég meina ... different people ... different needs.

Geit:  Sérfræðingur á alþjóðasviði stendur á nafnspjaldinu hans sem ég fann í náttborðsskúffunni minni um daginn.  Don't ask.  Ólíkt öðrum vinum mínum sem eru í full time skrifstofustarfi, þá er hann allavega með status: busy á MSN.

Anyway - þá er svosem ekkert að frétta héðan.  Skólinn byrjar á mánudaginn svo við höfum bara verið að mæla göturnar síðan við komum á miðvikudagsmorguninn.  Er þó reyndar búinn að komast að tvennu.

a)  ástæðu uppsagna Icelandair.
b)  kosti einkaþotna.

Það voru svona 13 manns í flugvélinni okkar.  Við þrír og Enoksen fjölskyldan frá Grænlandi.

Fórum á létt djamm í gærkvöldi.  Endaði á því að ég kom heim til mín kl. 14:45 í "morgun".  Var villtari en ísbjörn á Íslandi á röltinu í Frederiksberg í djammgallanum, úfið hár og 22 stiga hita.  

Ég er samt kominn langt framúr mér hérna.  Greinilega eitthvað ryðgaður í blogginu.  En þetta kemur eflaust aftur á no time.  

Until then...
  

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.04.2008 01:11:17 / Nonnmeister General

abc

Gaman að segja frá því að ég var að keyra heim úr skólanum áðan, þegar ég allt í einu mundi lykilorðið mitt á þessa síðu.  Hefur reyndar ekki valdið mér miklu hugarangri undanfarið ... en engu að síður skemmtilegt því að ég var gersamlega búinn að steingleyma því um daginn.

Skiptir svosem engu máli ... ætla svo sannarlega ekki að fara að blogga...  það er soooo 2006...

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 21:07:01 / Hannes

óskast

 
 
 
 
Gestabloggari óskast

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 17:56:22 / Hannes

Mynda tími


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 11:16:34 / Hannes

Dadara

Hmmm

Hver er staðan á okkur gaurunum?

Þetta eru síðustu fréttir.. 

 

        Stefnir            = Pabbi

        Alli                 = Pabbi

        Geir               = Vinna og kominn með kellu

        Hannes         = Skóla vinna og með kellu

        Nonni             =  Skóli vinna og blindfullur

 

Það er fjör í hópnum hehehe ;D 


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 23:50:44 / Hannes

hahahaha

 
 

"Hvar er ríku og ókvæntu mennina að finna?"

Fréttamynd 442535

Í New York. Reuters

Orðaskipti sem fram fóru á netinu á milli bandarískrar konu í leit að ríkum eiginmanni og óþekkts bankamanns á Wall Street, sem sagði hana í slæmri samningsstöðu, hafa vakið nokkra athygli í netheimum. Konan er 25 ára og auglýsti fyrir skömmu eftir aðstoð við að finna sér eiginmann sem hefði yfir hálfa milljón dollara í árslaun.

Í auglýsingunni sagðist konan vera "ofboðslega falleg" og "yfirborðskennd." Hún sagðist hafa verið með kaupsýslumönnum sem höfðu 200-250 þúsund dollara í árslaun "en ég virðist ekki geta komist ofar." Á slíkum launum nái enginn langt í New York, sagði konan, og spurði meðal annars: "Hvar er ríku og ókvæntu mennina að finna?"

Bankamaðurinn dularfulli, sem sagðist uppfylla öll skilyrði konunnar, útskýrði fyrir henni að hún væri að bjóða upp á "ferlega vond viðskipti."

"Útliti þínu mun hnigna, en peningarnir mínir halda áfram að ávaxtast um ókomna tíð ... staðreyndin er sú, að allar líkur eru á að ég muni hækka í launum, en það er alveg öruggt að fegurð þín mun ekki aukast!" sagði bankamaðurinn.

"Á máli kaupsýslumanna heitir þetta að verðgildi þitt rýrnar en verðgildi mitt vex. Ég skal útskýra þetta nánar: Þú ert 25 ára núna og verður líklega sæmilega heit næstu fimm árin, en þó minna ár frá ári. Svo ferðu virkilega að dofna. Þegar þú verður 35 ára er öllu lokið."

"Það eru ekki góð kaup í þér (þú ert í rauninni að bjóða þig til kaups), þannig að ég myndi frekar kjósa kaupleigu."

Konan hefur nú tekið auglýsinguna af vefnum - ásamt svarinu - en orðaskiptin hafa gengið manna á millum í tölvupósti og birst á bloggum. Talsmaður vefjarins sem auglýsingin birtist á tjáði The New York Times að svo virtist sem konan hafi birt auglýsinguna af heilum hug.

 

Þannig stelpur ef ykkur vanta efnilegt efni  í eiginmann krækið í Nonna áður en hann fer að hugsa svona ;D 


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.08.2007 10:17:12 / Hannes

Afmælispartý boð

 

! Afmælispartý ! 

 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 00:06:32 / Nonnmeister General

Nonni @ fotbolti.net

Þegar ég vaknaði í morgun, þá leit þetta út eins og hver annar fallegur sumardagur á Íslandi, nema hvað að það voru tveir pólskir iðnaðarmenn fyrir utan gluggann minn þegar ég vaknaði. Átti ekki von á því, en þetta var skemmtilegt surprise. Ég settist við skrifborðið mitt og byrjaði að glugga í skólabækurnar enda mikilvægt próf á morgun. Þegar ég saup fyrsta sopann úr könnunni minni datt mér engan vegin í hug að fyrir miðnætti ætti eftir að birtast mynd af mér í einum vinsælasta fjölmiðli landsins.

 

Eins og sjá má stend ég þarna í nýju hvítu hettupeysunni minni, undir ljósastaursboganum rétt vinstra megin við gáminn. Ykkur til glöggvunar, þá vil ég benda ykkur á að þarna er um vef að ræða sem er öllu vinsælli en pose.is - fm957.is og superman.is ... SAMANLAGT.

Það er því ljóst að þetta BeerBears blogg hefur hjálpað mér við að komast á síður vinsælustu fréttamiðla landsins. Ég hef því ákveðið að láta hér staðar numið og hætta að skrifa hérna. Enda er blogg sooo 2006. Ég þakka öllum lesendum sem hafa hjálpað mér að þessu markmiði mínu.

Fyrir þá sem vilja sjá nýju hvítu hettupeysuna mín upclose og personal geta séð hana hér á þessari mynd sem var tekin af okkur Hannesi í afmælinu hennar Signýar um daginn. Hún átti afmæli og ákvað að bjóða um 1000 manns í heljarinnar veislu á NASA. Þeir sem þekkja okkur (sem eru væntanlega báðir þeir sem kíkja hingað inn) - vita væntanlega að þetta er ekki besta myndin sem hefur verið tekin af okkur Hannesi!  Færri vita að þetta er alls ekki viskustykki sem Hannes er með um hálsinn.  Þetta er bara tíska...Habbzteinzi sagði mér það!

Bestu kveðjur,

Oggmonster General


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 12:00:29 / Nonnmeister General

Könnun

Hver kannast ekki við það þegar liðið er á vinnudaginn að hafa ekkert að gera og fara þá bara að hanga á netinu þar til vinnudegi líkur. Allavega ekki ég!

Ég fer þess í stað að lesa skólabækurnar mínar og þar er komið að ykkur að hjálpa mér örlítið. Til dæmis með því að svara þessari spurningarkönnun: http://secure.outcomesurveys.com/survey.aspx?ID=8097

Þetta er samt ýkt óggla langt og ég nenni varla að svara þessu sjálfur... 

Að öðru leiti er ekki rass að frétta. Ég fór á Prikið á laugardagskvöldið og stóð í lappirnar allan tímann. Stór strákur.

blæblæ


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 01:14:11 / Nonnmeister General

Smá fyrir svefninn...

Mig langar til að mótmæla reykingarbanninu sem sett hefur verið á skemmtistaði á Íslandi.  Ekki vegna þess að ég sé dyggur aðdáandi reykinga, heldur vegna þess að ég er fyrst orðinn smeykur um líf mitt eftir að það var sett á.

Um daginn sló ég heimsmetið hans Jesse Owens frá 1936, þegar ég flaug rétt tæplega 8 metra niður stigann á Prikinu.  Þetta myndi vera í svona 7 skiptið sem ég flýg niður stigann á Prikinu frá áramótum.  Sú breyting var gerð í kjölfar reykingabannsins að núna er portið fyrir aftan haft lokað og maður getur vippað sér út um dyrnar til að reykja.  Hurðin sem er í tröppunum hefur oftar en ekki bjargað því að ég endi í malbikinu þarna fyrir utan, en þar sem hún er höfð opin núna, þá sé ég fram á það að í framtíðinni muni ég koma til með að fara að fljúga alveg út í port...nema eitthvað verði að gert.

Ég skora því á ríkisstjórn landsins að heimila reykingar að nýju og spara sjálfum sér þannig milljónir í minn heilbrigðiskostnað á komandi árum.

Að lokum langar mig að spyrja ykkur gesti okkar:

a)  Hefur þú komið inn á Prikið?
b)  Hefur þú dottið í tröppunum þar?? (að því gefnu að þú hafir komið þangað inn).

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13